Flutningar í Ölduna, nýtt húsnæði Ölduselsskóla
Í dag mánudaginn 20. apríl flytur yngsta stig Ölduselsskól inn í Ölduna nýtt kennsluhúsnæði Ölduselsskóla
Flutningar í Ölduna, nýtt kennsluhúsnæði Ölduselsskóla
Í dag mánudaginn 20. apríl flytja nemendur yngsta stigs Ölduselsskóla í nýtt kennsluhúsnæði, Ölduna. Auk þess verður hluti verk- listgreina kenndar í Öldunni. Eins og flestum er kunnugt hafa miklar viðgerðar verið í skólanum í vetur vegna myglu. Nemendur og starfsmenn hafa búið þröngt og kennsla unglingadeildar í íslensku og stærðfræði hefur farið fram í kirkjunni. Nú þegar yngsta stigið hefur fengið nýtt húsnæði verður hægt að kenna unglingastiginu allar námsgreinar í skólanum. Mikil ánægja ríkir með þennan áfanga í starfi skólans.