Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember

Nemendur syngja skólasönginn

Í tilefni af degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember komu nemendur 1.-4. bekkjar saman á sal. 

Dagur íslenskrar tungu

Í tilefni af degi íslenskrar tungu komu nemendur 1.-4. bekkjar saman á sal. Í upphafi samkomunnar sungu nemendur saman skólasöng Ölduselsskóla en höfundur lags og texta er Haraldur Reynisson sem var kennari við skólann. 

Hver árgangur yngsta stigs var meðsitt  atriði; 1. bekkur söng „Frost er úti fuglinn minn“, 2. bekkur söng „Óskasteina“, 3. bekkur söng „Nú er frost á Fróni“ og 4. bekkur fræddi nemendur um Jónas Hallgrímsson og sagði frá nokkrum nýyrðum sem hann kom með inn í íslensku. Að lokum söng 4. bekkur lagið „Kvöldsiglingu“ textinn er eftir Gísla Helgason og lagið samdi Jón Sigurðsson. Atriðin voru fallega myndskreytt. Samkoman var í senn hátíðleg og falleg.