Fræðaveggur Ölduselsskóla

Verkefni tengt Benjamín- dúfu

Undanfarið hefur 5. bekkur unnið skemmtileg verkefni sem nú eru til sýnis á fræðavegg skólans

Sýning 5.bekkjar á verkefnum

"Undanfarnar vikur hafa nemendur 5. bekkjar unnið að stórum verkefnum. Í íslensku var unnið að verkefni sem tengist verðlaunabókinni Benjamín dúfa og svo Halloween verkefni í ensku. Þessi verkefni voru ákaflega vel unnin og ánægjulegt að segja frá því að þau eru komin upp á Fræðavegg skólans, öðrum til gagns og ánægju. Við hvetjum foreldra, gesti og gangandi að gera sér ferð í skólann og kynna sér listaverkin á meðan þau hanga uppi. Til hamingju 5. bekkur."