Fræðaveggur Ölduselsskóla 5.bekkur

Undanfarið hafa 5. bekkingar unnið að skemmtilegum verkefnum í íslensku og ensku. Afrakstur þessarar vinnu er til sýnis á Fræðavegg skólans. Endilega komið og skoðið á þessi skemmtilegu verkefni.

5. bekkur sýnir verkefni á Fræðavegg Ölduselsskóla

"Undanfarnar vikur hafa nemendur 5. bekkjar unnið að stórum verkefnum. Í íslensku var unnið að verkefni sem tengist verðlaunabókinni Benjamín dúfa og svo Halloween verkefni í ensku. Þessi verkefni voru ákaflega vel unnin og ánægjulegt að segja frá því að þau eru komin upp á Fræðavegg skólans, öðrum til gagns og ánægju. Við hvetjum foreldra, gesti og gangandi að gera sér ferð í skólann og kynna sér listaverkin á meðan þau hanga uppi. Til hamingju 5. bekkur."