Hundrað daga hátíð 1. bekkinga

Hópmynd af 1. bekk í tilefni af 100 daga hátíð þeirra
  1. bekkingar héldu upp á það nú í febrúar að þeir hefðu verið í nemendur Ölduselsskóla í 100 daga.

Hundrað daga hátíð 1. bekkinga Ölduselsskóla

Í tilefni af því að nemendur 1. bekkjar eru búnir að vera 100 daga í grunnskóla var haldin vegleg hátíð. Með aðstoð kennara sinna föndruðu  nemendur kórónur, gæddu sér síðan á poppi og öðru góðgæti. Mikil ánægja var með hátíðina hjá nemendum.