Skrekkur 2026

Skrekkur 2026

Stór hópur nemenda úr unglingadeild Ölduselsskóla tók þátt í Skrekk hinni árlegu hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík, þann 10. nóvember. 

Nemendur Ölduselsskóla stóðu sig með mikilli prýði er þau stigu á svið Borgarleikhússins þann 10. nóvember og sýndu Skrekks atriði sitt „7 mínútur“ við góðar undirtektir áhorfenda. Atriðið lýsti endurliti einstaklings yfir helstu atriði æviferils hans.  Stór hópur nemenda úr unglingadeild skólans ásamt stjórnendum og kennurum fylgdust með frammistöðu hópsins úr sal.

Grunnskólar Reykjavíkur með unglingastig (8. 9. og 10. bekkir) hafa leyfi til að senda eitt atriði í keppnina. Allar listgreinar og hverskonar atriði eru leyfileg.

Val á atriði og hugmynd að því verður að koma frá grunnskólanemendunum sjálfum en ekki frá utanaðkomandi aðila. Atriðið á að vera unnið af nemendum frá hugmynd til sviðsetningar. Hlutverk fullorðinna er að vera til halds og trausts fyrir hópinn og leiðbeina í gegnum ferlið.