Stóra upplestrarkeppni 7. bekkinga
Stóra upplestrarkeppni 7. bekkinga í Breiðholti var haldin í Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 17. mars. Allir fimm grunnskólarnir í Breiðholti áttu fulltrúa á keppninni og voru þeir til fyrirmyndar. Fulltrúi Ölduselsskóla sigraði keppnina í ár.
Stóra upplestrarkeppni 7. bekkinga
Stóra upplestrarkeppni grunnskólanna í Breiðholti 2025-2026
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Breiðholti var haldin í Fella- og óoHólak Hólakirkju í gær, þriðjudaginn 17. mars.
Á hátíðinni var ríkulegri uppskeru fagnað með vönduðum og fallegum upplestri og fágaðri framkomu nemenda úr 7. bekkjum grunnskóla í Breiðholti.
Sigurvegari keppninnar í ár var Eygló Íva Sigurlaugsdóttir, fulltrúi Ölduselsskóla, Aron Leví Arnþórsson, Hólabrekkuskóla var í öðru sæti og Kara Kristrún Bergmann í því þriðja.
Við erum mjög stolt af árangri Eyglóar Ívu og óskum henni sérstaklega til hamingju með frammistöðuna um leið og við óskum öllum þessum frábæru ungmennum innilega til hamingju með árangurinn