Nám og kennsla

Teikning af kennara fyrir framan töfluna í kennslustofu.

Grunnskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá grunnskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Meginmarkmið stefnunnar er að öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.

Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.

Mentor

Mentor er upplýsingakerfi fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans. Forsjáraðilar og nemendur fá aðgangsorð að Mentor. Á fjölskyldusíðunni sjá forsjáraðilar stundatöflur barna sinna, heimavinnu, námsmat, skólasókn og fleira.

Kennsluáætlanir

Í kennsluáætlunum er lýst  inntaki námsins og námsmati sem gefa kennurum, nemendum og foreldrum yfirsýn um það sem fengist er við í kennslunni. 

Námsmat

Námsmat miðast við hæfniviðmið og eru þau tengd verkefnum. Þegar lagt er mat á hæfni nemanda hverju sinni færist það inn á hæfnikort þeirra í Mentor. Þannig er hæfni nemenda sýnileg þeim og foreldrum jafnóðum.

Tvisvar á skólaárinu eða í okt/nóv og jan/feb, er samtal umsjónarkennara við nemanda og foreldra þar sem hæfnikortið og þar með námsleg staða nemenda er til umræðu og lögð drög að því sem fram undan er í náminu.

Kennsluhættir

Í Ölduselsskóla vinnur allt starfsfólk að stefnumörkun og forgangsröðun. Lögð er áhersla á uppbyggjandi skólastarf þar sem metnaður ríkir og virðing er borin fyrir bæði nemendum, foreldrum og starfsfólki. Í skólanum er lögð áhersla á allir nái árangri og til þess eru m.a. notaðir fjölbreyttir kennsluhættir. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennslu list- og verkgreina sem stundum er samþætt öðrum námsgreinum. Allir starfsmenn skólans eiga að njóta sambærilegra tækifæra til starfsþróunar og símenntunar. Allir starfsmenn skulu bera ábyrgð á að skapa andrúmsloft laust við fordóma af hvaða tagi sem er. 

Viðmið um skólasókn

Mikil áhersla er lögð á stundvísi nemenda í skólanum. Öll börn og ungmenni á aldrinum 6 til 16 ára eru skólaskyld og bera foreldrar/forsjáraðilar ábyrgð á því að börnin innritist í grunnskóla, sæki skólann og stundi þar nám.

Ef misbrestur verður á skólasókn ber foreldrum/forsjáraðilum og skólanum að bregðast við. Til þess að þau viðbrögð verði sem árangursríkust hafa grunnskólarnir í Reykjavík sett sér samræmd viðmið og reglur sem þeir vinna eftir.