Skólasetning Ölduselsskóla haust 2026
Mánudaginn 24. ágúst fer fram Skólasetning Ölduselsskóla fyrir skólaárið 2026-2027
Skólasetning Ölduselsskóla haust 2026
Skólasetning Ölduselsskóla verður mánudaginn 24. ágúst í hátíðarsal skólans sem hér segir.
2. - 4. bekkur Klukkan 8:30
5. - 7. bekkur Klukkan 9:00
8. - 10. bekkur Klukkan 9:30
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá að lokinni skólasetningu á hverju stigi.
Nemendur mæta með skólatösku, vatnsbrúsa og morgunnesti. Sundkennsla hefst þriðjudaginn 25. ágúst samkvæmt stundaskrá.
Þeir nemendur sem skráðir voru í mataráskrift á fyrra skólaári eru sjálfkrafa skráðir í áskrift. Nýir nemendur þurfa að skrá mataráskrift í gegnum matur.vala.is en beinn hlekkur er á heimsíðu skólans. Minnum á að mataráskrift er gjaldfrjáls fyrir alla nemendur Ölduselsskóla.