Þemadagar 25. og 26. mars 2026
Dagana 25. og 26. mars voru þemadagar haldnir í Ölduselsskóla. Þemadagar eru uppbrotsdagar þar sem hefðbundin kennsla er brotin upp með ýmiskonar verkefnum sem tengjast þáttum úr Aðalnámskrá grunnskóla. Að þessu sinni var unnið með þætti sem tengjast félagsþroska og góðum samskiptum.
Þemadagar Ölduselsskóla

Verkefni nemenda tengdust að þessu sinni góðverkum. Hvernig við getum verið tillitsöm, umhyggjusöm og aðstoðað hvert annað. Nemendur bjuggu til góðverkatré, góðverkagjafabréf til foreldra, komu upp loppuskiptimarkaði og margt fleira sem tengdist góðverkum. Nemendur unglingadeildar söfnuðu gömlum böngsum sem þeir gáfu nafn, áhugamál, sögu og upplýsingar um hvað þeir myndu vilja láta lesa fyrir sig. Þessir bangsar verða síðan afhentir nemendum á yngsta stigi sem geta síðan lesið fyrir bangsana sem eru þá eins konar lestrarvinir nemenda.
Þann 27. mars var síðan opinn foreldradagur þar sem foreldrum var boðið upp á að fá kynningu á og skoða afrakstur vinnu nemenda á þemadögunum. Góð mæting var hjá foreldrum.