Vorhátíð Ölduselsskóla 19. maí, 2026

Eygló Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri setti hátíðina

Þriðjudaginn 19. maí var haldin Vorhátíð Ölduselsskóla 2026. Vorhátíðin er árlegur viðburður sem skólinn og starfsmenn hans standa að ásamt foreldrafélagi skólans. Fjölmenni sótti hátíðina í góðu veðri.

Vorhátíð Ölduselsskóla 2026

Þriðjudaginn 19. maí var haldin Vorhátíð Ölduselsskóla 2026. Vorhátíðin er árlegur viðburður sem skólinn og starfsmenn hans standa að ásamt foreldrafélagi skólans. Fjölmenni sótti hátíðina í góðu veðri. 

Við setningu hátíðarinnar var Aldan nýtt kennsluhúsnæði skólans vígt. Eygló Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri ávarpaði gesti, að því loknu hjálpuðust nemendur, einn úr hverjum árgangi yngsta stigs hjálpuðust að við að klippa á borða, að því loknu söng 2. bekkur frumsamin texta en kveikjan að textanum var „góðverk“.  Lagið við textann var samið með aðstoð gervigreindar. Setningin, vígslan og atriði 2. bekkjar var hátíðlegt og setti svip á hátíðina. Fjölmenni mætti og nutu bæði börn og fullorðnir samverunnar og þeirra atriða sem í boði voru í góða veðrinu. 

Þökkum þeim sem tóku þátt í Vorhátíðinni kærlega fyrir skemmtilega dagsstund.